yeah

Ernesto Che Cuevara, estaba en su año pasado en estudios médicos cuando él decide ir a viajar  con su amigo, Alberto. Alrededor de América latina, 8 mil kilómetros en cuatro meses. Desearon ver y explor el continente en donde ellos vida y saben solamente al lado de los libros. Viven en Buenos Aires en la Argentina. Sus padres donde no muy feliz sobre este decicion, sino ellos no podrían pararlo de ir. Su padre también le dice que él hubiera soñado sobre hacer igual cuando él era más joven.

           

Comienzan el recorrido en una vieja motocicleta que Alberto posea y aman. La llamada el poderosa del la de la motocicleta, su viejo y él se escapó, pero cuando han ido alrededor 4960 kilómetros que la motocicleta está quebrada y no tienen ningún dinero para fijarla. Che consigue inspirado a la derecha en el principio y él los strats para entender que el mundo sea más que el lugar en donde él vive. Él es intresed en la gente que él ve y que está intentando siempre ayudar.

           

Che es muy honesto y la dosis dice siempre la verdad specialy cuando afecta salud de los someones. Él y Alberto son absolutamente diferentes en este caso. Una vez que estén intentando conseguir un lugar para dormir satisfacen a alguna más vieja gente. Alberto los comienza a decir que sean doctores. El hombre entonces pide que tomen una mirada en algo en su cuello. Che lo mira y dice a hombre que sea un tumor y que él debe ir a Buenos Aires enseguida a ver a algún especialista. Ésa es noticias no muy buenas del ofcourse así pues, Alberto le dice que esto no sea un tumor y éste es justo un quiste sebaceous, y le dice que si pueden dormir la noche y tener algo comerlos puede hechar una ojeada él. Cuando los dos de ellos no convienen el hombre les dice salir. Necesitaron tan dormir hacia fuera echan a un lado esta noche, tantos otras.

Consiguen generalmente el lugar para dormir diciendo que son los doctores y están viajando a través de América latina al intento descubren la mayor parte de las enfermedades peores del vigésimo siglo. Che también maneja conseguirlos adentro al periódico. Este todas las ayudas ellos a sobrevivir.

En la manera paran en las novias de los che a casa. Él está en amor con ella. Ella le da 15 dólares por ella una planta cuando van a los E.E.U.U. Cuando Alberto ve el dinero él bisele la parada que piensa de ellos y de subsistencias que preguntan a Ernesto si las utilizan pero Ernesto no rompe la promesa. Hasta que él da a alguien que todo el dinero cuando él tenía recived una forma Chichina de la letra, su amigo del gril, adonde ella se rompió para arriba con él.

Satisfacen a muchos de gente durante este viajar. Gente de todas las clases sociales. Cambia a Che para satisfacer a los indios y para oír su historia. Cómo habían sido tratados por el gowrament. Quién los había golpeado con el pie de su tierra.

Che ve porciones de las cosas que él desea a los cambios, y es muy inspirated por lo que él ve. Y él se pregunta cómo el mundo sería si las cosas habían sido diferentes. Él consigue un gran nostragia cuando él ve el Machu Picchu en Perú. Él cree que Los indios tenían gran knowleg adentro la astronomía, medicina, matemáticas entre otras pero los invarders españoles tenía  el polvo.

Cuando vienen a Perú que van resolver dr Hugo Persce, el jefe del programa para la lepra del tratamiento en Perú. Alberto tenía contacto él antes de que comenzaran el recorrido. Él los alimentó, les dio los paños nuevos, el dinero y algunas ideas muy buenas. Él pide que lean una novela esa él wright. Alberto dice le que esto sea un trabajo brillante, solamente a Ernesto, no puede mentir a él y no le dice isacly lo que él piensa de él.

Ernesto y Alberto entonces van a la lepra hostpital y a los strats a trabajar allí como voluntario. Deciden no a donde eran los guantes que son supoused porque ellos para no desear porque es puramente simbolic. El rennur del río de amazon entre el lugar donde están los enfermos y donde viven los doctores y las monjas. Cuando Ernesto cellibrating su día del nacimiento en los 14 de junio, él que más desean al cellebrate con los enfermos que los doctores, así que él los diciedes nadar una cruz el río. Es un símbolo puro de cómo él los diss tuvo gusto de todos división de la clase.

Después de que el viaje él los fells que él tenía cambios y no es así que seguro sobre el acabamiento sea estudios. Él tiene algunas nuevas ideas.

Eftir 1952 del júni del endaði 26 de Ferðin 12425 kilómetros


sumar?

Er sumarið að koma? Áðan þegar ég var nýkomin heim sá ég lítinn strák úti að hjóla á litlu hjóli með hjálpadekkjum, öðrumegin var búið að beygla annað hjálpadekkið og það var greinilegt að stráksi var enn að venjast því. Hann var bara á peysunni og með hjálm á hausum og þessar fáu sekúndur sem hann var hérna fyrir framan húsið skein sólin á hann eins og hann væri að draga sólina og lýsa upp hverfið. Ég varð þá ótrúlega glöð og leið eins og sumarið væri komið, en síðan hjólaði hann í burtu og tók sólina með sér. Í gær fór ég með Sólveigu út að borða, hún átti afmæli, við ákváðum að fara á vegamót. Þegar við fundum loksins stæði í miðbænum tók nokkra stund að labba að staðnum. Það rigndi en samt var okkur ekki kalt, það var alveg ótrúlega hlýtt miðað við undanfarna daga 7°c Tilfinning var svona eins og þegar maður fer út að borða í útlöndum. Þegar inn var komið var alveg ótrúlega mikið af fólki, við náum loksins að finna borð og fengum okkur sæti. Það var frekar dimmt þarna inni og á öllum borðum var kerti, mér fannst stemmingin í fyrstu pínu óhugnanleg. Við fengum matseðilinn og furðum okkur á augngotum þjónsins og ótrúlegri kurteisi hans. Við horfðum í kringum okkur og sáum þá að þarna voru bara pör, haldandi í hendurnar á hvort öðru, ofsalega rómantísk. Þá rann upp fyrir okkur að það var Valentínusardagurinn! Afsjálfsögðu dóum við úr hlátri enda skýrði þetta skrýtna hegðun þjónanna sem virtust eiga í svolitlum vandræðum með framkomu gagnvart okkur, ég hugsa að það hafi verið útbreiddur misskilningur að við værum lellur...Síðan eftir góðan mat drifum við okkur í vinnuna, Sólveig búin að neyta vel af grænu M&Mi                                                                                                         

ISCH Sólskinsgeisla Kvöld Rökkurdís BEST IN SHOW!

Terrier sýningin um síðustu helgi gekk vonum framar. Ég var ekki með miklar væntingar af því að ég er búin að vera veik og Rökkurdís því ekki búin að fá mikla hreyfingu undan farið. Hún var hinsvegar í feikna stuði og sýndi sig vel þegar hún kom inn í hringinn. Það skemmdi heldur ekki fyrir að á sama tíma var verið að klappa fyrir e-h í hinum hringnum en Rökkurdís tók hrósið til sín. Dómaranum leist bara vel á hana þegar hún skoðaði hana á borði og gaf henni Exellent. Þá skoðaði hún hina tíkina hana Mystic og gaf henni líka Exellent. Rökkurdís stóð þó uppi sem sigurvegari og fékk sitt þriðja meistarastig!!! Hún varð svo besti hundur tegundar og keppti því í Best in show.  Ég hugsaði áður en ég fór inn í hringinn að það væri nú gaman að ná þriðja eða fjórða sæti, ég varð því pínu lítið vonsvikin þegar þau höfðu gengið út. Það kom mér því rosalega á óvart þegar dómarinn Siv Jernhake rétti mér rauðu róhettuna. Það var samt alveg ótrúlega skemmtilegt, ég átti einhvernvegin ekki von á því að Rökkurdís kæmi til með að verða besti hundur sýningar!  Fyrir utan þessa frétt er svo sem ekki mikið að frétta. Ég er bara á fullu í skólanum, sem er ágætt, alltaf nóg að gera að minnsta kosti.  Í sambandi við veðrið er ég ekkert smá sátt, ég elska sól, snjó og frost allt í einum pakka, þegar það er ekki rok. Í dag dreif ég krakkana í Klapparholti út í göngutúr upp á Rauðavatn þar sem þau fengu að leika sér á ísnum. Ég tók Rökkurdís með enda vekur hún mikla kátínu hjá krökkunum, ekki síst þegar þau fá að kasta bolta fyrir hana. Ég vildi að ég hefði verið með myndavél með mér því þetta var svona ekta myndaveður. Ég reyni að muna það næst. Á morgun er ég að fara á námskeið í Sólheimum, það verður eflaust gaman en ég væri alveg til í að geta átt daginn í útivist og skroppið jafnvel uppí fjöll á skíði. Annars er ég líka komin með æði fyrir gönguskíðum en vonandi verður bara gott veður á sunnudaginn. Næsta vika veður svo auðvitað æðisleg, einn besti dagur ársins, Bolludagur er á mánudaginn og ég get ekki beðið eftir að gæða mér á gómsætum rjómafylltum bollunum. Ég fæ bara vatn í munninn við tilhugsunina. Svo kemur auðvitað sprengidagur sem er kannski ekki eins vinsæll hjá mér, en Öskudagur er hinsvegar líka alveg ótrúlega skemmtilegur, þá fara allir í búninga og ganga um syngjandi og sníkjandi. Mér finnst samt leiðinlegt hvað hefðin með öskupokana er alveg horfin. Ég man einu sinni þegar ég var lítil þá var ég búin að vanda mig mikið í handavinnu í skólanum að sauma öskudagspoka og gat varla beðið eftir því að fara af stað og hengja á mann og annan, en þegar á hólminn var komið tímdi ég ekki að hengja pokana á neinn því mér fannst þeir svo flottir... En nóg í bili ætla að fara að læra. Kveðja,ISCH Sólskinsgeisla Kvöld RökkurdísJónína Sif

Eyðimerkur

Eyðimerkur 

Eyðimerkur er í landafræði svæði þar sem úrkoma er minni en 250 mm á ári og einkennast af litlum gróðri, slík svæði þekja u.þ.b. einn þriðja af jörðinni. Köld svæði Suðurskautslandsins og á norður heimskautinu eru eyðimerkur vegna kulda, þar er oft svo kalt að frost fer ekki úr jörðu allt árið um kring. Orðið eyðimörk er þó oftar notað um svæði þar sem úrkoma er tvöfalt minni en uppgufun. Einnig geta jarðlög verið svo agrópin að úrkoma nýtist ekki gróðri og þau verða gróðurvana af þeim sökum. Eyðimerkur eru því aðallega staðsettar við norður og suðurheimskautin og við miðbaug. Þekktasta eyðimörkin er sennilega Sahara í afríku enda er hún sú stærsta í heimi. Sahara er arabíska og þýðir einfaldlega eyðimörk. Sahara þekur um það bil 9.065.000 ferkílómertra. Aðrar stórar eyðimerkur eru til dæmis Gobi eyðimörkin sem liggur á landamærum Mongólíu-Kína 1.295.000 Kalahari Sunnarlega í Afríku 582.000 Stóra Viktoría Ástralía 338.500 Stóra Sandy Ástralía 338.500

Jarðvegurinn á heitu svæðunum er að mestu bara sandur eða klöpp og lítt lífrænn, hann er talsvert súr og mjög þurr. Hann er kalk og saltríkur og því fáar plöntur sem þrífast við þessi skilyrði aðallega harðgerðar tegundir runna, smávaxinna trjáa og kaktusa og aðrar plöntur sem geta geymt vatn og með djúpar rætur. Þar sem kaldara er nær vatnið sem fellur til jarðar ekki að gufa upp líkt og þar sem heitt er og vegna sífreri nær vatnið ekki að síga niður í jarðveginn og renna burt. Jarðvegurinn er kaldur, grunnur oft vatnssósa og loftfirrtur. Niður brot lífrænna efna er mjög hægt. Á þessum svæðum eru smárunnar, grös, starir, fléttur og mosar alls ráðandi í umhverfinu. Jarðvegurinn þarna er einnig mjög súr og ófrjór og hentar því illa til ræktunnar.

 Dýralíf í eyðimörkum saman stendur aðallega af skrið og skordýrum sem og lávöxnum spendýrum. Snákar, eðlur, sporðdrekar og engisprettur eru mjög algeng dýr í heitum eyðimörkum. Eyðimerkurrefur og jarðíkornar og önnur lítil nagdýr sem og fuglar oftast spörfuglar hafa aðlagast lífinu í eyðimörkinni. Annars eru líka hægt að finna hinar ýmsu tegundir antilópu. Við jaðar eyðimarkanna er dýralíf fjölskrúðugra og þá má finna hinar ýmsu grasbíta og eining rán dýr svo sem ljón. Dýralífið fer þó vissulega eftir staðsetningu eyðimarkanna. Í köldu eyðimörkunum eru fuglar og stærri spendýr svo sem hreindýr. Fólk býr einnig oft á þessum svæðum, litlir þjóðflokkar sem ferðast oft á milli svæða í leit að beiti löndum fyrir dýrin sín. Á heimskautasvæðum býr fólkið aðallega í nánd við hafið, þar er dýralíf líka fjölbreyttar og fæðu öflun þar af leiðandi auðveldari. Talið er að ef þær loftlagsbreytingar sem spáð hefur verið gangi eftir steðji heiminum stór ógn af eyðimörkum. Þær munu stækka og dreifa úr sér á svæðum þar sem í dag er ræktað land. Fari svo mun matvælaframleiðsla minnka og sennilega yrði hungursneið mjög algeng og viðvarandi ástand í mörgum heimshlutum. Talið er að í kringum 2100 verði þriðjungur jarðarinnar eyðimörk. Hinsvegar hefur mönnum alltaf staðið örlítil ógn af eyðimörkinni og þær þjóðir sem hafa lifað í nálægð við þær trúðu því oft að ef fólkið færi ekki eftir orði guðs eða myndi á einhvern hátt vinna á móti honum þá myndi hann hegna fólkinu með því að breiða úr eyðimörkinni og láta sandflauminn renna um land þeirra.   

Frú hálsbólga á bak og burt

Aldrei aftur hálsbólga! Mínum aðal óvini, Frú Hálsbólgu hefur verið sett stríð á hendur. Á föstudaginn fór ég í hálskirtlatöku, alveg kominn tími til enda fór ég ósjaldan á sýklalyf á síðasta ári vegna streptakokka. Tilhugsunin um hálskirtlatökuna var í raun ekki svo slæm, bara borða ís og slaka á. Hinsvegar er þetta ekki alveg svona notalegt. Það er ógeðslega óþægilegt að kyngja, sérstaklega á morgnanna þegar maður hefur ekki tekið inn verkjalyf legni. Röddin er líka heldur kjánaleg og verkur í hálsi sem leiðir upp í eyru. Ég er svo búin að vera alveg hrikalega heppin eða þannig því ég er svo viðkvæm fyrir verkjalyfjum, tek þau örsjaldan, að ég er að deyja í maganum líka, og hélt engu niðri í gær. Það var afskaplega óþægilegt. Ég veit ekki hvað ég verð lengi veik heima, læknirinn talaði um tæpar tvær vikur og enga áreynslu í tvær vikur. En ætli það komi ekki bara í ljós, það eru svo margar hunda sýningar á næstunni að ég má ekki vera að því að liggja veik heima. Svo er skólinn líka byrjaður og ég er skráð í 27 einingar, sem er alltof mikið þannig að ég er að reyna ákveða mig hvaða áfanga ég á að hætta í.  Annars er mest lítið að frétta, ég er að lesa sjálfstætt fólk núna og þykir hún bara ákaflega skemmtileg.  Það er opið í bláfjöllum í dag og ég get ekki lýst því hvað mig langar mikið á skíði, en ég er víst ekki á leiðinni, ég vona að það verið margir góðir opnunardagar núna í vetur, ég væri alveg til í að bæta færni mína á svigskíðum sem og gönguskíðum en ég er ekkert of lipur í skíðaíþróttum, þó ég hafi gaman af. En ég ætla að fara að lesa um hann Bjart vin minn í sumarhúsum og fá mér frostpinna, sem ég gerði sjálf úr ananas, kíví, engifer og jarðaberjum, ég held að hann verði ótrúlega góður. Sjáumst hress,Jónína Sif

Blaður

Hvernig er þetta, þegar ég á að vera að læra eða hef í raun sjálf ákveðið að núna sé góður tími til að læra þá verður allt í einu allt annað mun áhugaverðara. Ég  var til dæmis byrjuð að búa til aðgang að facebook... af hverju ætti ég að vilja hafa aðgang að facebook?

Þetta getur verið óþolandi og stundum, eða reyndar frekar oft velti ég því fyrir mér hvort ég sé með athyglisbrest... ég þekki sjúkdóminn eða heilkennið ekki nógu vel en miðað við nafnið passar það við mig. Ég get átt alveg sjúklega erfitt með að einbeita mér, við allar aðstæður til dæmis í bíó... gleymi mér og fer að hugsa um eitthvað annað og eitthvað annað og enda á því að sofna. Samt þegar að ég er að lesa eitthvað áhugavert þá heyri ég ekki í öðrum því athyglin er það mikil að það myndast bara veggur í kringum mig, gjörið svo vel takið númer og farið í röð...

 Nei segi svona ætli flestir námsmenn lendi ekki í þessu, búnir að kveikja á tölvunni og ákveða að kíkja á póstinn áður en alvaran byrjar, fara svo að skoða link sem þeim var sendur og síðan allt í einu eru öll áform um lærdóm löngu gleymd.

Kveðja,

Lærandi 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband