Sunnudagur, 13. janúar 2008
Frú hálsbólga á bak og burt
Aldrei aftur hálsbólga! Mínum aðal óvini, Frú Hálsbólgu hefur verið sett stríð á hendur. Á föstudaginn fór ég í hálskirtlatöku, alveg kominn tími til enda fór ég ósjaldan á sýklalyf á síðasta ári vegna streptakokka. Tilhugsunin um hálskirtlatökuna var í raun ekki svo slæm, bara borða ís og slaka á. Hinsvegar er þetta ekki alveg svona notalegt. Það er ógeðslega óþægilegt að kyngja, sérstaklega á morgnanna þegar maður hefur ekki tekið inn verkjalyf legni. Röddin er líka heldur kjánaleg og verkur í hálsi sem leiðir upp í eyru. Ég er svo búin að vera alveg hrikalega heppin eða þannig því ég er svo viðkvæm fyrir verkjalyfjum, tek þau örsjaldan, að ég er að deyja í maganum líka, og hélt engu niðri í gær. Það var afskaplega óþægilegt. Ég veit ekki hvað ég verð lengi veik heima, læknirinn talaði um tæpar tvær vikur og enga áreynslu í tvær vikur. En ætli það komi ekki bara í ljós, það eru svo margar hunda sýningar á næstunni að ég má ekki vera að því að liggja veik heima. Svo er skólinn líka byrjaður og ég er skráð í 27 einingar, sem er alltof mikið þannig að ég er að reyna ákveða mig hvaða áfanga ég á að hætta í. Annars er mest lítið að frétta, ég er að lesa sjálfstætt fólk núna og þykir hún bara ákaflega skemmtileg. Það er opið í bláfjöllum í dag og ég get ekki lýst því hvað mig langar mikið á skíði, en ég er víst ekki á leiðinni, ég vona að það verið margir góðir opnunardagar núna í vetur, ég væri alveg til í að bæta færni mína á svigskíðum sem og gönguskíðum en ég er ekkert of lipur í skíðaíþróttum, þó ég hafi gaman af. En ég ætla að fara að lesa um hann Bjart vin minn í sumarhúsum og fá mér frostpinna, sem ég gerði sjálf úr ananas, kíví, engifer og jarðaberjum, ég held að hann verði ótrúlega góður. Sjáumst hress,Jónína Sif
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.